Lífið

Erfitt í Hollywood

Natalie Portman segir nauðsylegt að hafa stuðning fjölskyldunnar.
Natalie Portman segir nauðsylegt að hafa stuðning fjölskyldunnar.
Leikkonan Natalie Portman sagði í viðtali við þýskt tímarit að það væri henni nauðsynlegt að eiga stuðning foreldra sinna. Portman sagði að það væri vegna þeirra sem hún hefði styrk til að takast á við duttlunga Hollywood. „Fjölskylda mín og vinir hafa alltaf verið til staðar fyrir mig og það er mér mikilvægt því í Hollywood skiptast á skin og skúrir. Einn daginn er verið að hrósa manni og næsta dag er verið að rífa þig niður. Það er mjög lýjandi fyrir mann,“ sagði Natalie.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.