Innlent

Útlit fyrir gott veður norðan og austan til

MYND/GVA

Það stefnir í sumarauka um norðan og austanvert landið næstu daga með björtu, hlýju og tiltölulega stilltu veðri. Samkvæmt spá Veðurstofunar gæti hitinn farið upp í 17 stig norðanlands á morgun og svo upp í 20 stig norðaustanlands á fimmtudag og föstudag.

Áfram er spáð hlýindum á þessu svæði um helgina. Heimamenn á norðaustanverðu landinu taka þessu fagnandi eftir heldur kalsamt og þokugjarnt sumar, þegar sól og hiti gældu við landsmenn suðvestanlands. Þeir mega nú sætta sig við vætu og sólarleysi næstu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×