Innlent

Óvíst hvenær dæluskip getur hafist handa í Landeyjahöfn

Valur Grettisson skrifar
Landeyjahöfn.
Landeyjahöfn. Mynd / siglingastofnun.is

„Það verður ráðist í þetta um leið og það er hægt," segir Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Siglingastofnunar, um það hvenær dæluskip geti hafist handa við að dýpka Landeyjahöfn.

Veður hefur tafið alla vinnu auk þess sem dæluskipið getur ekki starfað í mikilli ölduhæð.

Stefnt er á að starfsmenn dæluskipsins hefjist handa á morgun. Það er þó óljóst enda ölduhæðin allnokkur á morgun samkvæmt spám.

„Það verður ekki farið austur fyrr en veður er boðlegt," segir Þórhildur en starfsmenn skipsins nýta tímann í dag til þess að skipta um gír í dæluskipinu áður en þeir leggja í hann. Skipið liggur við festar í Reykjavík.

Þegar verkið hefst er áætlað að það taki nokkra daga en talið er að fjarlæga þurfi um 7000 rúmmetra af efni til þess að losa um haftið sem hindrar að Herjólfur geti siglt inn í höfnina.

Þess í stað siglir Herjólfur nú á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja.

Aðspurð hvort dæluskipið geti byrjað að dæla upp úr höfninni um helgina svarar Þórhildur: „Þetta verður gert um leið og það er hægt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×