Innlent

Katrín afhenti Foreldraverðlaunin

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin.
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, voru afhent í 15. sinn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin.

Handhafar Foreldraverðlaunanna 2010 eru Vinafjölskyldur í Vesturbæjarskóla, verkefni Margrétar Gylfadóttur, Sesselju Ólafsdóttur og Maríu Helenu Sarabia, foreldra í Vesturbæjarskóla.

Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt ein hvatningarverðlaun og tvenn dugnaðarforkaverðlaun:

Hvatningarverðlaun 2010 hlaut Foreldrafélag Hvassaleitisskóla, Inga Ívarsdóttir formaður foreldrafélagsins og Linda B. Ólafsdóttir fulltrúi í skólaráði Hvassó, fyrir verkefnið Vinir í Hvassó.

Dugnaðarforkaverðlaun 2010 voru tvenn og voru veitt til Borghildar Jósúadóttur fyrir ötult foreldrastarf í framhaldsskólum og til Önnu Margrétar Sigurðardóttur fyrir framúrskarandi störf í þágu foreldrasamstarfs í Fjarðabyggð.

Að auki var Sigurveigu Sæmundsdóttur þakkað fyrir óeigingjarnt starf í þágu samtakanna, en Sigurveig hefur verið í dómnefnd fyrir Foreldraverðlaun Heimilis og skóla um langt árabil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×