Framkvæmdastjóri LÍÚ: Ráðherra svíkur dragnótamenn 2. júní 2010 14:36 Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ „
Það er ekki hægt að segja að það komi lengur á óvart, en okkur þykir það samt miður að enn á ný skuli Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ganga á bak orða sinna," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ í frétt frá LÍÚ. Hann segir að ráðherra hafi á fundi með dragnótamönnum lofað að fara frekar yfir málið með þeim áður en til ákvörðunar kæmi. Það loforð hafi verið svikið. Ráðherra tilkynni í gær þá ákvörðun sína að banna dragnótaveiðar í sjö fjörðum næstu fimm árin. Lokunin tekur gildi næstkomandi mánudag, 7. júní. Friðrik segir að með ákvörðun ráðherra sé alvarlega vegið að rekstrargrundvelli útgerða dragnótabáta sem stundað hafi veiðar í þessum fjörðum. Aðdragandinn sé einnig ótrúlega skammur. Enginn tími sé gefinn til þess að bregðast við breyttum aðstæðum. „Tillögurnar voru fyrst lagðar fram í lok apríl. Óskað var eftir athugasemdum fyrir 20. maí en málið er síðan keyrt í gegn án þess að taka nokkurt tillit til þeirra," segir framkvæmdastjóri LÍÚ. Hafrannsóknastofnunin birti í vetur skýrslu um rannsókn sína í Skagafirði. Orðrétt segir í skýrslunni: „Þær niðurstöður sem fengust í þessari rannsókn benda ekki til að dragnótin hafi áhrif á botndýralíf í Skagafirði." „Ráðherra hefur til þessa ekki haldið niðurstöðum skýrslunnar á lofti enda styðja þær ekki ákvörðun hans. Nú er skyndilega vitnað til skýrslunnar og niðurstöðurnar sagðar oftúlkaðar. Staðreyndin sem við öllum blasir er að það eru engin vísindaleg rök að baki þessari geðþóttaákvörðun ráðherra," segir Friðrik í fréttinni.
Mest lesið Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Innlent Mjög alvarlegt tilfelli Innlent Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Innlent Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Innlent Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Innlent Segja slúbberta hjá hinu opinbera kosta ríkið 30 til 50 milljarða árlega Innlent Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Innlent Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Innlent Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Innlent Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn Innlent Fleiri fréttir Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Margt sem hægt sé að læra af Svíum í baráttunni gegn mansali Mál hættulegra fyrrverandi fanga endi alltaf eins Þjónusta hjálparsímans tryggð Mannskæður eldsvoði, garður ofan á Sæbraut og sviðakjammakaka Ákærður fyrir að ráðast á leigubílstjóra Grímur sjálfkjörinn í sæti Ingvars Tæp tvö þúsund ný leikskólapláss í Reykjavík á næstu fimm árum Einn lést í brunanum á Hjarðarhaga Alvarlega særður en ekki í lífshættu eftir árás í Úlfarsárdal Blanda af „Mikka mús og íþróttaálfinum“ ógni lýðheilsu Sakar Guðrúnu um sjúklega þráhyggju Stokkur fjarlægi gjána sem skilji að Vogahverfin Hættir að taka krókinn um Háaleitisbraut og Miklubraut Vildu að skikkjan yrði rifin af öxlum Ómars Fjórtán ára piltur grunaður um að leggja hníf að hálsi annars við Hvaleyrarvatn „Þar sem vændi þrífst þar þrífst líka mansal“ Útburður manns úr Bríetartúni dreginn til baka Mjög alvarlegt tilfelli Viðbúnaður í Vesturbæ og nikótínumræður á Alþingi Guðrún segir ríkisstjórnina slá skjaldborg um Flokk fólksins Skera niður til að mæta launahækkunum Töluverður eldsvoði og þrír fluttir af vettvangi í sjúkrabíl Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust Tekur sér leyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð Bein útsending: Afmælisráðstefna Afstöðu Kynntu fyrirhugaðan Sæbrautarstokk Börnin fari út en liggi undir trampólíninu í símanum Ráðist með hníf að ungmenni í Hafnarfirði Sjá meira