Fátækt og einangrun 15. nóvember 2010 20:21
Öryrkjar búa við félagslega einangrun og fátækt og eiga erfitt með fóta sig á vinnumarkaði. Þetta segir í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Öryrkjabandalag Íslands. Hinn dæmigerði öryrki er kona á fimmtugsaldri með litla menntun og ástæða örorku er í flestum tilvikum stoðkerfisvandamál eða gigt. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Öryrkjabandalag Íslands. Langflestir öryrkjar hafa verið á vinnumarkaði en hlotið örorku vegna sjúkdóms eða annarra áfalla. Meðal kvenna eykst hlutfallið hratt eftir fertugt. „Fólk er búið að vinna eins og sumir segja, sína hunds og kattatíð, þar til heilsan brestur. Margar konur hafa búið við tvöfalt vinnuálag, margar hverjar erfiðisvinnu úti á vinnumarkaði og það sem tekur við þegar heim er komið," segir Guðrún Hannesdóttir, félagsfræðingur. Í skýrslunni er dreginn upp frekar dökk mynd af stöðu öryrkja hér landi. Margir glíma við fjárhagserfiðleika, félagslega einangrun og fordóma. Aðeins þriðjungur er á vinnumarkaði en samspil bóta og tekna dregur hins vegar úr áhuga margra á frekari atvinnuþátttöku. Er bótakerfið vinnuletjandi? „Það er það. Við megum ekki gleyma því heldur, að þetta eru mjög lágar tekjur sem fólk er að fá. Hitt er annað mál, að fólk sem er veikt, fólk sem hefur litla starfsgetu, það sparar við sig, það fer ekki að fara út á vinnumarkaðinn upp á von og óvon og missa síðan, það veit hvað það hefur en ekki hvað það fær," segir Guðmundur Magnússon formaður Öryrkjabandalags Íslands. Færri komast að en vilja í starfsþjálfun eða endurhæfingu eða einungis 15 prósent. Guðmundur segir ekki nóg að fá starfsþjálfun ef vinnumarkaðurinn sé ekki tilbúinn að taka við fólki. „Í fyrsta lagi er vinnumarkaðurinn mjög ósveigjanlegur varðandi hlutastörf, og svo ekki nógu sveigjanlegur varðandi þá sem eru í góðu standi í dag en ómögulegir á morgun. Þannig að það eru ýmsir sjúklingahópar sem eru þannig staddir og það vantar umburðarlyndi í vinnumarkaðinn," segir Guðmundur.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira