Innlent

Séra Hólmgrímur dáist að hugrekki kvennanna sem stigu fram

Erla Hlynsdóttir skrifar
Þær konur sem greindu frá því að séra Ólafur Skúlason hafi beitt þær kynferðisofbeldi voru rægðar þegar þær stigu fyrst fram
Þær konur sem greindu frá því að séra Ólafur Skúlason hafi beitt þær kynferðisofbeldi voru rægðar þegar þær stigu fyrst fram

„Maður hefur setið sem lamaður hvað eftir annað yfir fréttaflutningnum og fundið til með þeim konum sem stigið hafa fram og sagt sögu sína," segir Séra Hólmgrímur Bragason, héraðsprestur í Austfjarðaprestakalli.

Í nýjasta tölublaði Austurgluggans er rætt við Hólmgrím og aðra austfirska presta um málefni kirkjunnar.

„Maður spyr sig aftur og aftur hvernig gat þetta gerst og af hverju var þeim ekki trúað á sínum tíma? Það er eins og maður sé að fara í gegnum sorgarferli, hinar ýmsu tilfinningar ráðast að manni án þess að gera boð á undan sér," segir Hólmgrímur.

„Það er ekki annað hægt en að dást að hugrekki og persónuleika þessara kvenna sem gefið hafa kirkjunni óvænt tækifæri til þess að biðja þessar hetjur afsökunar um leið og kirkjan fagnar þessu tækifæri til þess að gera upp þetta hörmulega mál. Hugrekki þessara kvenna og allra þolenda kynferðisofbeldis er svo dýrmætt að seint eða aldrei er hægt að þakka það nóg," segir Hólmgrímur í samtali við Austurgluggann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×