Fæðingamet slegið - rúmlega fimm þúsund börn 10. september 2010 09:15 Mynd: Hagstofan
Árið 2009 fæddust 5.027 börn hérlendis, 2.561 drengur og 2.466 stúlkur. Það eru 192 fleiri börn en ári áður, en þá fæddust hér 4.835 börn. Aldrei áður hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári. Áður fæddust flest börn árið 1960 þegar 4.916 börn fæddust og árið 1959 þegar 4.837 börn litu dagsins ljós. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Meirihluti barna fæðist utan hjónabands Aðeins rúmlega þriðjungur barna á Íslandi fæddist í hjónabandi árið 2009 (35,6%). Þetta hlutfall hefur haldist nokkuð stöðugt frá því um miðjan tíunda áratug síðustu aldar, en þá var það 36,5%. Frá 1961 til 1996 lækkaði hlutfall þeirra barna sem fæddust í hjónabandi úr 74,3 % niður í 36,5% á sama tíma og hlutfall þeirra barna sem fæddust í óvígðri sambúð jókst úr 13,4% í 50,9%. Það hlutfall er óbreytt árið 2009 (48,8%). Hlutfall barna sem fæðast utan sambúðar eða hjónabands er því hlutfallslega nokkuð svipað og það var á árunum 1961-1965. Þá fæddust 12,4% allra barna utan hjónabands eða sambúðar en voru 15,6% árið 2009, segir á vef Hagstofunnar. Hvort barn fæðist innan eða utan hjónabands fer mikið eftir því hvar í systkinaröðinni það er. Árið 2009 fæddist um fimmtungur frumburða (20,8%) innan hjónabands og 55,4% frumburða móður áttu foreldra í óvígðri sambúð. Áberandi flest börn mæðra sem ekki voru í hjónabandi eða sambúð voru fyrsta barn; foreldrar 23,8% fyrsta barns voru ekki í sambúð, samanborið við 11,0% foreldra annars barns, 8,1% þriðja barns og 12,9% fjórða barns eða fleiri.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira