Mjög ósáttur vegna krufningar folalda 28. október 2010 07:00 Álfssonurinn Skjótta hestfolaldið hafði þroskast mjög vel þegar það drapst, að sögn eiganda þess. Hann segir Keldur hafa neitað að kryfja það, eins og MAST hafi þó hvatt menn til. „
Þetta eru ekkert annað en hamfarir fyrir mér í minni hrossarækt,“ segir Ríkharður Flemming Jensen hrossaræktandi. Hann missti nýverið tvö folöld af þremur, sem hann átti, úr hóstapestinni, að því er hann telur. „Þetta voru stórættuð folöld, undan fyrstu verðlauna hryssum og stóðhestunum Kappa frá Kommu og Álfi frá Selfossi,“ bætir Ríkharður við. Hann er ósáttur við tilraunastöðina á Keldum, þar sem honum var hafnað um ókeypis krufningu á því folaldinu er síðar drapst. Ríkharður bendir á að þetta sé ekki í samræmi við þau skilaboð til hestaeigenda sem birt voru á vef Matvælastofnunar, þar sem segir að Keldur kryfji nú hross eigendum að kostnaðarlausu, ef líkur séu á að hóstinn hafi orðið hrossinu að fjörtjóni. „Hestaeigendur eru því hvattir til að láta dýralækni vita um grunsamleg tilvik, með því móti leggja þeir sitt af mörkum til aukinnar þekkingar á sjúkdóminum,“ segir enn fremur. „Ég gat fengið folaldið krufið, en það átti að kosta mig tæpar fjörutíu þúsund krónur,“ segir Ríkharður.„Ég hefði talið að þeir sem eru að rannsaka hóstaveikina þyrftu á öllum þeim upplýsingum um hana að halda sem fyrir hendi væru. Þeir segjast vera komnir með skýra mynd af ástandinu með því að kryfja sautján folöld. Mér finnst það allt of lítið úrtak af landinu öllu eins og staðan er núna.“ Ríkharður segir að veikindin í fyrra folaldinu, Kappadótturinni, hafi uppgötvast um mánaðamótin ágúst-september. „Ég tók mæðgurnar heim í hesthús, þar sem dýralæknir meðhöndlaði folaldið í þrjár vikur. Það var allt reynt, öll hugsanleg fúkkalyf, auk þess sem ég var kominn með góðan vin minn, sérfræðing í háls,- nef- og eyrnalækningum í málið. Við gáfum því asmabúst, stera og annað sem að gagni gæti komið, því það var með svo mikla öndunarerfiðleika. Það eru engin lyf til í landinu fyrir hross með þannig einkenni, svo að við urðum að nota mannalyf.“ En litla hryssan lifði ekki af. Hún hafði fengið blóðeitrun í kjölfar veikinnar. Eftir krufningu á Keldum var úrskurðað að hún hefði drepist úr eitruninni, en ekki veikinni. „Fagmenn segja mér að blóðeitrunin hafi verið kjölfarssýking þegar ónæmiskerfi folaldsins veiktist vegna hóstaveikinnar. Ég spyr mig hvort þær staðhæfingar sem Matvælastofnun gefur út um lítinn folaldadauða af völdum veikinnar séu fengnar á svipaðan hátt.“jss@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira