Hjólar í kringum landið á tíu dögum 9. ágúst 2010 09:41 Læknaneminn Alissa lagði af stað í morgun. Slagorð söfnunarinnar er „Okkar leið - allra málefni“
Læknaneminn Alissa Rannveig Vilmundardóttir lagði í morgun af stað í tíu daga hjólaferð kringum landið þar sem hún hyggst hjóla til styrktar krabbameinsrannsóknum. „Markmið mitt er að hjóla í kringum Ísland til að kynna og styrkja Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum. Slagorð ferðarinnar er Okkar leið - allra málefni,“ segir Alissa. Alissa lagði af stað klukkan níu í morgun. Markmiðið er að ljúka hringferðinni á tíu dögum, en Alissa gefur sér fjóra aukadaga ef þess gerist þörf. Gerir hún ráð fyrir að koma til Reykjavíkur 18. eða 19. ágúst Söfnunarferð Alissu kringum Ísland hófst og endar við húsnæði Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum að Læknagarði og að ferð lokinni verður athöfn þar sem Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands sem er verndari söfnunarinnar, afhendir skjal til marks um þá upphæð sem safnast hefur. Alissa býður öllum að hjóla með sér síðustu kílómetrana til Reykjavíkur, það er úr Mosfellsbæ að Læknagarði og vonast til að fjölmenni taki þátt á síðustu metrunum og sýni með því stuðning sinn við krabbameinsrannsóknir á Íslandi og njóti léttra veitinga við ferðalok. Símalína til styrktar málefninu er 904-1339. Með því að hringja í símanúmerið leggjast sjálfkrafa 1.339 krónur á reikning verkefnisins. Þetta svarar til einnar krónu á hvern kílómetra sem hjólaður er. Hægt er að skoða heimasíðu átakins hér.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira