Innlent

Stakk sér til sunds að nýju

Dýrið lét fara vel um sig í fjörunni á Flateyjardal. mynd/víðir
Dýrið lét fara vel um sig í fjörunni á Flateyjardal. mynd/víðir
Rostungurinn sem kom í land við Flateyjardal fyrir helgi var heppinn að sleppa lifandi. Fyrir­hugað var að skjóta dýrið þar sem það var talið illa sært.

Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, segir að um misskilning hafi verið að ræða og við nánari athugun hafi ekki reynst mikið að rostungnum. Rostungurinn stakk sér enda aftur til sunds og hefur ekki til hans spurst síðan. Ekki er óalgengt að rostungar komi á land á Íslandi og reynast þeir oft hinir gæfustu. Dýrin eru alfriðuð.- sv



Fleiri fréttir

Sjá meira


×