Innlent

Át og drakk fyrir fé vistmanna

Konan hafði prókúru fyrir reikninginn til matarinnkaupa.
Konan hafði prókúru fyrir reikninginn til matarinnkaupa. Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Ríflega fimmtug kona hefur verið ákærð fyrir að draga sér tæpar 400 þúsund krónur af sameiginlegum bankareikningi vistmanna verndaðs heimilis þar sem hún starfaði. Hún hafði prókúru fyrir reikninginn til matarinnkaupa.

Að því er segir í ákærunni notaði konan hins vegar kortið í 156 skipti í eigin þágu, keypti sér snyrtivörur, lét taka af sér passamyndir, borðaði skyndibita og drakk á fjölmörum börum bæjarins, auk þess sem hún greiddi með því eigin læknisþjónustu og reikninga.

Meintur fjárdráttur nam alls 386 þúsund krónum og stóð frá 2000 til 2004. - sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×