Flugfarþegar eiga að fá aukakostnað endurgreiddan 16. apríl 2010 14:43
Flugfarþegar sem verða fyrir töfum og truflunum þegar flugferðum er aflýst eða seinkað vegna eldgoss eiga rétt á að fá greiddan aukakostnað sem af töfum hlýst, til dæmis vegna máltíða eða gistinga. Um réttindi flugfarþega er fjallað í reglugerð nr. 261/2004.Greint er frá þessu á vefsíðu samgönguráðuneytisins. Þar segir að reglugerðin fjallar um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð vegna farþega sem neitað er um far, þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður. Greint er á milli skaðabóta annars vegar og aðstoðar hins vegar og segir í 5. grein reglugerðarinnar að flugrekanda beri ekki skylda til að greiða skaðabætur ef hann getur fært sönnur á að flugi hafi verið aflýst af völdum óviðráðanlegra aðstæðna sem ekki hafi verið hægt að afstýra.Flugrekendum ber hins vegar að greiða kostnað sem farþegar verða fyrir vegna tafa og óvæntrar gistingar þegar þeir geta ekki lokið ferð. Á þetta því til dæmis við um farþega sem staddir eru hérlendis og komast ekki á fyrirhuguðum ferðadegi tilbaka og þá sem staddir eru erlendis og komast ekki heim á réttum degi.Í þessum tilvikum skal bjóða farþegum eftirfarandi endurgjaldslaust:Máltíðir og hressing í samræmi við töfina, hótelgisting ef farþegi neyðist til að bíða eina eða fleiri nætur eftir fari og flutning milli flugvalla og gististaðar. Einnig skal bjóða farþegum að hringja eða senda skilaboð.Ef farþegar fá ekki framangreinda þjónustu frá flugrekenda eða flytjanda og þurfa að greiða fyrir hana sjálfir þá skulu þeir taka kvittanir fyrir útlögðum kostnaði og krefja flugrekanda eða flytjanda um endurgreiðslu á þeim kostnaði.Óviðráðanlegar aðstæður fella því ekki niður rétt á þjónustu samkvæmt því sem að framan er talið og segir í 9. grein reglugerðarinnar.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira