Ögmundur: Jón er ekki einn 25. ágúst 2010 13:25 Ögmundur Jónasson. Mynd/Stefán Karlsson
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir menn fara hamförum gegn samflokksmanni hans, Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og líkja megi því við einelti. Ögmundur segir að Jón sé ekki einn í afstöðu sinni að vera andvígur aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ummæli Jóns í Morgunblaðinu í vikunni um að í raun væri hafin aðlögun að reglum ESB hafa vakið misjöfn viðbrögð. Bæði Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir sögðu eftir ríkisstjórnarfund í gær misskilnings gæta í máli Jóns um aðildarviðræðurnar. Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, krefjast afsagnar Jóns og þá var Össur Skarphéðinsson harðorður í garð Jóns í Fréttablaðinu í dag. Þar sagðist hann meðal annars gruna að Jón hefði ekki beitt „víðfrægri ályktunargáfu sinni."Segir Jón framfylgja samþykkt Alþingis Ögmundur gefur lítið fyrir þessa gagnrýni í pistli á heimasíðu sinni í dag. Þar rifjar Ögmundur upp að Jón hafi á síðasta ári greitt atkvæði gegn því að Ísland sækti um aðild Evrópusambandinu. „Þetta var í fullu samræmi við það sem áður hafði verið sagt við myndun núverandi ríkisstjórnar að fyrirsjáanlegt væri að þingmenn VG myndu ekki greiða atkvæði á einn veg," segir Ögmundur og bætir við að sem ráðherra hafi Jón framfylgt þeirri stefnu sem Alþingi samþykkti varðandi aðildarumsóknina. „Þegar það síðan gerist að viðræðuferlið verður að aðlögunarferli - að því er séð verður - og boðið er upp á fjárveitingar til að smyrja ferlið sem best, þá spyrnir Jón Bjarnason við fótum enda er það í hans ráðuneytum sem mestu kröfurnar eru reistar. Þetta er fullkomlega málefnalegt og eðlilegt og nokkuð sem ríkisstjórnin mun án efa taka til skoðunar af fullri alvöru," segir Ögmundur.Tjá Evrópusambandinu ást sína Ögmundur segir ljóst að á nákvæmlega sama hátt og stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar séu frjálsir að því að tjá Evrópusambandinu ást sína sé öðrum frjálst að hafa uppi efasemdir um slíkt ástarsamband. „Rétt er að hafa í huga að síðarnefndi hópurinn á hljómgrunn með stórum hluta þjóðarinnar - að öllum líkindum meirihlutanum eins og staðan er nú! Læt ég þá liggja á milli hluta að VG er andvígt aðild sem stjórnmálaflokkur í ályktunum sínum og stefnu." Þá segir Ögmundur að Jón sé ekki einn í afstöðu sinni. „Þetta skyldu þeir hafa í huga sem nú fara hamförum gegn Jóni Bjarnasyni á netinu og víðar á þann hátt að líkja má við pólitískt einelti. En Jón er ekki einn. Hvorki í sínum flokki né með þjóðinni."
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira