Innlent

Helguvík: Ráðherra boðar til fundar

Katrín Júlíusdóttir.
Katrín Júlíusdóttir.

Iðnaðarráðherra hefur boðað til fundar í dag vegna framkvæmda við álverið í Helguvík, en mikil óvissa hefur verið um framvindu verkefnisins á síðustu misserum.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, boðað alla hagsmunaaðila á sinn fund í dag. Um er að ræða upplýsingafund fyrir ráðherra um stöðu mála en á fundinum verða fulltrúar orkufyrirtækja, framkvæmdaaðilar, fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu, Orkustofnunar, Samtaka atvinnulífsins og ASÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×