Innlent

Prestur braut kynferðislega gegn unglingum

Erla Hlynsdóttir skrifar
Biskupsstofa.
Biskupsstofa.

„Biskupsstofa staðfestir að fram hafa komið ásakanir frá þremur einstaklingum á hendur presti um kynferðislega áreitni og kynferðisbrot. Fagráð um meðferð kynferðisbrota hefur haft málið til umfjöllunar.

Viðkomandi presti voru kynntar þær ásakanir sem hann var borinn. Brotin áttu sér stað fyrir 25 árum og eru því fyrnd að lögum. Viðkomandi prestur hefur ekki gegnt föstu embætti í kirkjunni um árabil.

Hann mun sökum brotanna ekki gegna störfum sem prestur né koma fram á vegum þjóðkirkjunnar, safnaða hennar, stofnana eða kristilegra félaga sem starfa innan vébanda hennar."

Þetta kemur fram í bréfi sem Vísi barst frá Biskupsstofu eftir að blaðamaður bar málið upp við formann fagráðs um meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar.

Eins og segir í bréfinu eru brotin fyrnd og koma málin því aldrei til kasta dómstóla. Presturinn er sakaður um að hafa brotið gegnum tveimur unglingum á sextánda ári og einum fulltíða einstaklingi.

Lögum um kynferðisbrot gegn börnum undir átján ára aldri var breytt árið 2007 á þann veg að brotin fyrnast ekki. Lögin eru ekki afturvirk.

Umræða um kynferðisbrot presta innan þjóðkirkjunnar hefur farið hátt að undanförnu. Þar hafa hæst borið ásakanir á hendur séra Ólafi Skúlasyni, fyrrverandi biskupi íslands. Áratugir eru síðan hann var fyrst sakaður um kynferðisbrot en málið var þaggað niður.

Þær konur sem sökuðu hann um að hafa brotið gegn sér voru gerðar tortryggilegar og jafnvel úthrópaðar á götum úti.

Viðhorf í samfélaginu hafa breyst á þessum árum sem liðin eru síðan. Þegar dóttir séra Ólafs steig nýverið fram og sagði föður sinn hafa misnotað sig virtist það hafa þau áhrif að fleiri fóru að taka mark á hinum konunum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×