Hugsanlegt að samstarfsáætlun AGS og Íslands verði breytt Höskuldur Kári Schram skrifar 28. mars 2010 12:51 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Hugsanlegt er að breyta þurfi samstarfsáætlun Íslands og Alþjóðgjaldeyrissjóðsins til að önnur endurskoðun sjóðsins geti farið fram sem fyrst. Þetta segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra. Tafirnar sem orðið hafa þykja mjög vandræðalegar fyrir sjóðinn. Upphaflega stóð til að önnur endurskoðun sjóðsins á efnahagsáætlun Íslands færi fram í janúarmánuði síðastliðnum. Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur þó ekki viljað setja málið á dagskrá fyrr en niðurstaða liggur fyrir í Icesave málinu. Afstaða Norðurlandanna hefur einnig valdið því að málið hefur tafist. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, fundaði ásamt Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, með Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á föstudag. „Við fórum yfir stöðuna og hvaða möguleikar væru fyrir hendi. Íslendingar lögðu auðvitað ríka áherslu á að það var alveg óásættanlegt frá okkar sjónarhóli að endurtaka leikinn frá því í fyrra þegar AGS áætlunin beið mánuðum saman eftir því að Icesave málið þokaðist áfram. Það er ekki boðlegt að okkar mati og við komum því skýrt á framfæri og ég fékk ekki annað séð en að menn væru almennt sammála um að það væri alveg ófært að endurtaka þann leik." Gylfi telur líklegt að endurskoðunin fari fram í næsta mánuði. „Ég held að það séu þokkalegar líkur á því að við getum þokað þessu áfram. hugsanlega breytum við áætluninni eitthvað til þess að hægt verði að ná því fram en það er ekki neinn sem græðir á því að binda saman AGS áætlunina eða halda henni í herkví vegna Icesave málsins. Það kom ekki vel út í fyrra og er í raun mjög vandræðalegt fyrir alla sem að því stóðu, bæði sjóðinn sjálfan, Norðurlöndin Breta og Hollending og auðvitað mjög óþægilegt fyriri Íslendinga."
Mest lesið „Ég táraðist í flugvélinni“ Innlent Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Innlent Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Innlent Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Innlent Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Innlent Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Bein útsending: Leggja loks af stað til tunglsins Erlent Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Erlent Fleiri fréttir Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði Sjá meira