Pakistan leikur tveimur skjöldum í Afganistan Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. júlí 2010 12:00 Fyrr í þessum mánuði var Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Islamabad þar sem hún lýsti því yfir að Pakistan og Bandaríkin væru bandamenn og lofaði auknum fjárstuðningi til Pakistan frá Washington.
Leyniþjónusta Pakistan aðstoðar Talibana í stríði við Bandaríkjamenn í Afganistan þrátt fyrir að fá milljarð dollara árlega frá Bandaríkjastjórn og vera yfirlýstur bandamaður Bandaríkjanna. Þá virðast Talibanar í Afganistan sterkari en nokkru sinni þrátt fyrir níu ára stríðsrekstur Bandaríkjamanna í landinu. Þetta kemur fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem vefsíðan Wikileaks birti í gærkvöldi. Viðkvæmu leyniskjölin sem Wikileaks birti ná yfir 92 þúsund blaðsíður og fjalla á ítarlegan hátt um veru Bandaríkjahers í Afganistan. Þrjú dagblöð, The New York Times, breska dagblaðið Guardian og hið þýska Der Spiegel, fengu gögnin afhent fyrir mánuði síðan til að vinna úr þeim fréttir gegn því skilyrði að þær myndu ekki birtast fyrr en í fyrsta lagi í gærkvöldi. Eitt af því sem gögnin afhjúpa er að leyniþjónusta Pakistan aðstoðar Talibana í Afganistan að berjast við Bandaríkjaher þrátt fyrir að vera yfirlýstur bandamaður Bandaríkjanna og þiggja eins milljarðs dollara fjárstuðning frá Washington árlega. Í gögnunum kemur fram að Pakistan heimilar pakistönsku leyniþjónustunni að eiga leynilega fundi með Talibönum í Afganistan. Þá koma fram upplýsingar um skýrslur hermanna á jörðu niðri í Afganistan sem eru reiðir þar sem Pakistan vilji ekki koma höndum yfir uppreisnarmenn sem hafi ráðist á afganska og bandaríska hermenn nálægt landamærunum og flúið yfir að árásunum loknum. Þessar upplýsingar eru í hrópandi mótsögn við það sem komið hefur fram á yfirborðinu um samskipti Bandaríkjanna og Pakistan. Nú síðast fyrr í þessum mánuði var Hillary Clinton, utanríkisráðherra, í heimsókn í Islamabad og sagði ríkin tvö vera bandamenn og þá lofaði hún, við sama tilefni, hálfum milljarði dollara í fjárstuðning. Þá hafa aðrir fulltrúar ríkjanan tveggja sagt samskipti ríkjanna góð. Í leynigögnunum kemur fram að þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi eytt þrjú hundruð milljörðum dollara, jafnvirði 36 þúsund milljarða króna, í stríðsreksturinn í Afganistan séu Talíbanar í Afganistan öflugri en nokkru sinni síðan stríðið hófst árið 2001. Þessar upplýsingar ættu að draga þróttinn úr mörgum stuðningsmönnum stríðsins. Ríkisstjórn Bandaríkjanna fordæmdi birtingu gagnanna í gærkvöldi. Bandaríska stórblaðið The New York Times sér ástæðu til að birta sérstakt bréf til lesenda sinna í blaði dagsins þar sem blaðið útskýrir hvers vegna það taldi nauðsynlegt að birta fréttir byggðar á gögnunum. Blaðið fer jafnfram yfir gögnin hafi öll verið sannreynd áður og reynst ósvikin. Þá hefur Bandaríkjastjórn ekki dregið áreiðanleika þeirra í efa.
Tengdar fréttir Talibanar bjóða lík fyrir fanga Talibanar í Afganistan segjast hafa fellt bandarískan hermann og séu með annan í haldi. Hermannanna tveggja hefur verið saknað síðan á föstudag. Talibanar gáfu út yfirlýsingu í gær um þeir hefðu fellt annan í skotárás en að hinn væri á lífi í haldi þeirra. 26. júlí 2010 05:00 Fordæma lekann hjá Wikileaks Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fordæmt birtingu leyniskjalanna sem Wikileaks vefsíðan hefur birt og jafnframt komið í hendur stórblaðanna New York Times, Der Spiegel og Guardian. 26. júlí 2010 07:34 Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira
Talibanar bjóða lík fyrir fanga Talibanar í Afganistan segjast hafa fellt bandarískan hermann og séu með annan í haldi. Hermannanna tveggja hefur verið saknað síðan á föstudag. Talibanar gáfu út yfirlýsingu í gær um þeir hefðu fellt annan í skotárás en að hinn væri á lífi í haldi þeirra. 26. júlí 2010 05:00
Fordæma lekann hjá Wikileaks Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fordæmt birtingu leyniskjalanna sem Wikileaks vefsíðan hefur birt og jafnframt komið í hendur stórblaðanna New York Times, Der Spiegel og Guardian. 26. júlí 2010 07:34