Þetta er bara kjaftæði 12. nóvember 2010 04:15 Forstjóri verktakafyrirtækis gefur lítið fyrir yfirlýsingar um að stutt sé í stórframkvæmdir í vegagerð. Sá söngur hafi heyrst of oft. Hann segir ríkið stuðla að gjaldþrotum verktaka með því að taka tilboðum langt undir kostnaði. Mynd/Anton „
Þetta er bara kjaftæði. Það er búið að segja þetta svo oft." Þetta eru viðbrögð Hilmars Konráðssonar, forstjóra Magna verktaka, við tíðindum um að vegagerð fyrir tugi milljarða sé í sjónmáli. Í Fréttablaðinu á miðvikudag var greint frá góðum gangi í viðræðum lífeyrissjóðanna og ríkisins um fjármögnun vegaframkvæmda. Hilmar segir ráðamenn hvað eftir annað hafa gefið mönnum í verktöku vonir um að eitthvað kynni að vera að fara af stað en aldrei hafi neitt gerst. Meðal þeirra stórframkvæmda sem áformað er að ráðast í, gangi allt eftir, eru göng undir Vaðlaheiði. Hilmar telur þær ráðagerðir vitlausar við núverandi aðstæður. „Sú framkvæmd kostar mjög mikið en skapar fá störf, kannski fimmtíu. Það væri miklu nær að fara í fleiri smærri verkefni sem sköpuðu fleirum, segjum tvö þúsund manns, atvinnu." Í byrjun árs sagði Hilmar í samtali við Fréttablaðið að ástandið í verktakabransanum væri skelfilegt. „Það er búið að ákveða að taka greinina af lífi," sagði hann þá. Nú, rúmum tíu mánuðum síðar, segir hann orð sín hafa staðist. „Flest þeirra fyrirtækja sem enn starfa væru komin í þrot ef ekki væri biðstaða í dómskerfinu um lögmæti fjármögnunar- og kaupleigusamninga. Lýsing og þessi fyrirtæki geta ekki rukkað okkur. Þess vegna er ekki meira hrun í þessum geira en raun ber vitni. En allir nema Ístak og ÍAV sem eru í eigu útlendinga eru komnir með neikvætt eigið fé." Hilmar segir ástandið á markaðnum óheilbrigt; í þau örfáu verk sem boðin hafi verið út að undanförnu hafi tilboðum allt að 50 prósent af kostnaðaráætlunum verið tekið. Það segi sig sjálft að slíkt gangi ekki. „Ríkið er í fararbroddi þeirra sem taka lægstu tilboðunum. Með því gersamlega stútar ríkið fyrirtækjum sem hugsanlega gætu lifað." Veikburða fyrirtæki bjóði í örvæntingu mjög lágt í verk en skynsamlega rekin fyrirtæki fari ekki jafn lágt. Fyrir vikið verði þau af verkefnum og lognist á endanum út af. Sjálfur horfir Hilmar fram á endalok eigin rekstrar. „Ég var með sextíu manns í vinnu en nú eru sex eftir og þeir hætta eftir áramót. Þrjátíu ára starf er ónýtt en ég græt það ekkert, það kemur dagur eftir þennan dag." bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Sjá meira