Innlent

Truflun í raforkukerfi Landsnets

Grundartangi. Myndin er úr safni.
Grundartangi. Myndin er úr safni.

Um kl. 11:15 varð truflun í raforkukerfinu sem olli straumleysi hjá stóriðjunotendum samkvæmt tilkynningu frá Landsneti.

Orsök truflunar er á þessu stigi rakin til bilunar í rafbúnaði hjá Norðuráli á Grundartanga. Ekki varð um rof á afhendingu frá flutningskerfinu til almenningsveitna en talsverður óróleiki varð á spennu á Norður- og Austurlandi, þar sem miklar álagsbreytingar urðu við útleysingu stóriðju.

Verið er að koma rekstri aftur í eðlilegt horf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×