Gleymdi að spyrja um áverka 11. september 2010 04:00 Starfsmaður sem brenndist illa af gufu úr potti á KFC á fimmtudagskvöld fór með félögum sínum á bráðamóttöku. Hann er á batavegi.Fréttablaðið/GVA
Mistök voru gerð hjá Neyðarlínunni á fimmtudagskvöld þegar starfskona á KFC í Kópavogi hringdi þangað vegna þriggja starfsbræðra sinna sem brenndust af gufu úr potti. Mennirnir þrír komu sér sjálfir á bráðamóttöku. Dagný Halldórsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir konuna sem hringdi ekki hafa óskað eftir aðstoð heldur sett fram fyrirspurn. „Það var spurt hvort ekki væri rétt að fara á neyðarmóttökuna vegna bruna af völdum heits vatns. Neyðarvörðurinn tók undir það og þannig lauk samtali þeirra,“ segir Dagný sem kveður viðbrögð neyðarvarðarins ekki hafa verið samkvæmt bókinni. „Hann hefði átt að taka betur stjórn á símtalinu; afla upplýsinga um hvað væri um að vera og alvarleika áverkanna. Þetta hefði líklega leitt til þess að sjúkrabílar hefðu verið sendir,“ útskýrir Dagný. Aðspurð segir hún að samkvæmt upplýsingum frá lækni hafi þessi mistök þó ekki komið að sök. Mennirnir hafi komist fljótt á sjúkrahús. Samkvæmt yfirlýsingu frá Helga Vilhjálmssyni, eiganda KFC, var það neyðarvörður sem átt frumkvæðið í samtalinu. „Spurði starfsmaður Neyðarlínunnar hvort viðkomandi væri þannig á sig kominn að annað starfsfólk treysti sér til að aka viðkomandi á neyðarmóttöku í Fossvogi. Það væri fljótlegasta leiðin,“ segir í yfirlýsingunni. Tveir starfsmannanna sem brenndust hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi og sá þriðji er á batavegi. - gar
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira