Lífið

Útón heldur fræðslukvöld

Eldar Ástþórsson hjá tónlistarsjóðnum Kraumi heldur erindi á fræðslukvöldi Útón.
fréttablaðið/arnþór
Eldar Ástþórsson hjá tónlistarsjóðnum Kraumi heldur erindi á fræðslukvöldi Útón. fréttablaðið/arnþór

Fyrsta fræðslukvöld Útón á árinu verður haldið á þriðjudagskvöld í Norræna húsinu. Farið verður yfir alla helstu sjóði er standa tónlistarfólki til boða og hvernig þeir starfa.

Fulltrúar nokkurra sjóða, bæði úr einkageiranum og hinum opinbera, halda erindi og fjalla um hvernig starfi þeirra er háttað. Þeirra á meðal eru Þuríður Kristjánsdóttir frá Norræna menningarsjóðnum, Rósa Þorsteinsdóttir frá Menningaráætlun Evrópusambandsins og Eldar Ástþórsson frá tónlistarsjóðnum Kraumi.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá kamilla@icelandmusic.is eða í síma 511 4000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.