Hótuðu ítrekað ofbeldi og lífláti 12. nóvember 2010 06:00 Fólkið hótaði lögreglumönnum ítrekað á leið á lögreglustöð.
Ríkissaksóknari hefur ákært nítján ára stúlku fyrir ofbeldi og hótanir gegn lögreglu. Í ákæru segir að aðfaranótt sunnudagsins 30. maí síðastliðins hafi stúlkan ráðist með ofbeldi að tveimur lögreglumönnum sem voru við skyldustörf, sparkað í hægri sköflung annars þeirra og í hægra læri hins. Atvikið átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Manhattan í Reykjanesbæ. Jafnframt er stúlkunni gefið að sök að hafa í lögreglubifreið á leið á lögreglustöð með ógnandi hætti hótað öðrum lögreglumannanna líkamsmeiðingum og ofbeldi með því að láta þau orð falla að hún ætlaði að drepa fjölskyldu hans. Þá hefur ríkissaksóknari ákært tvítugan mann fyrir að hafa á sama stað í apríl síðastliðnum ráðist með ofbeldi á lögreglumann, sem þar var við skyldustörf og sparkað í hægri fótlegg hans með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn hlaut bólgu og eymsli í hægri ökkla. Einnig hafi hann, í lögreglubíl á leið á lögreglustöð, með ógnandi framkomu ítrekað hótað tveimur lögreglumönnum, sem þá voru við skyldustörf, lífláti. Bæði málin eru rekin fyrir Héraðsdómi Reykjaness.- jss
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira