Starfsmannafélag Suðurnesja skorar á heilbrigðisráðherra 12. nóvember 2010 09:33
Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja (STFS) skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka fyrirhugaðan niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þetta var samþykkt á fundi félagsins í gær. Í ályktuninni segir að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sé einn af hornsteinum að góðum búsetuskilyrðum á svæðinu. Hugmyndir heilbrigðisráðherra þýði uppsagnir á hátt á 80 starfsmönnum, flest konum. Það sé ekki viðeigandi á svæði þar sem mesta atvinnuleysi sé fyrir á landinu. Ályktun STFS: Stjórn STFS skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka fyrirhugaðan niðurskurð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Staðreyndin er sú að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er einn af hornsteinum fyrir góðum búsetuskilyrðum á Suðurnesjum, en mjög hefur verið þrengt að henni undanfarin ár t.d. með lokun heilsugæslusela í Garði, Sandgerði og Vogum og ekki síst lokun skurðstofu í vor og þar með lamaðri fæðingardeild. Þetta hefur þýtt um 9% fækkun starfsmanna. Ef hugmyndir heilbrigðisráðherra um 400 m.kr. niðurskurð ganga eftir þýðir það að sjúkrahúsþjónusta mun að mestu leyti leggjast af og í framhaldi verða uppsagnir á hátt í 80 starfsmönnum fyrst og fremst konur, og er það ekki viðunandi á svæði þar sem mesta atvinnuleysi er fyrir á landinu. Síðustu tveir heilbrigðisráðherrar hafa ekki viljað ljá máls á því að fá betri nýtingu á skurðstofum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja m.a. með útleigu. Núverandi heilbrigðisráðherra mun vera jákvæðari til þeirra mála og hefur framkvæmdastjórn HSS fullan vilja til að standa að slíku verkefni. Stjórn STFS fagnar því að nú hyllir undir að framkvæmdir við gamla sjúkrahúsið að Ásbrú hefjist innan skamms og að fyrstu meðferðir geti hafist þar næsta sumar. Á sjúkrahúsinu verður útlendingum boðið upp á sérhæfðar meðferðir og að sögn forsvarsmanna þess má búast við því að þar skapist hátt í þrjú hundruð störf, flest úr heilbrigðisgeiranum. Lítur STFS á þessa starfssemi fyrst og fremst sem viðbót á störfum fyrir heilbrigðisstarfsmenn á Suðurnesjum og þá er vildu starfa hér. Þarna er tendraður vonarneisti fyrir þá fjölmörgu starfsmenn heilbrigðisstofnana sem því miður mega búast við fjöldauppsögnum gangi hugmyndir ríkisstjórnarinnar eftir. Samþykkt á stjórnarfundi í Starfsmannafélagi Suðurnesja fimmtudaginn 11.11 2010.
Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Sjá meira