Starfsmenn Securitas leituðu að sprengjum á Laufásvegi Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. nóvember 2010 11:09 Starfsmenn Securitas sáu um öryggisgæslu við sendiráðið á Laufásvegi. Mynd/ Hari.
Óeinkennisklæddir starfsmenn Securitas sáu um öryggisgæslu og sprengjuleit við sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi allt til ársins 2005. Þetta staðfestir Guðmundur Arason, forstjóri Securitas, í samtali við Vísi. „Þeirra hlutverk var að hafa eftirlit með umferð um hverfið. Þeir voru í sprengjuleit og voru þjálfaðir sem slíkir," segir Guðmundur. Hann segir að í slíkum tilfellum þurfi að leita að sprengjum undir bílum sem koma að húsinu og í ýmsum skúmaskotum í nágrenni við húsnæði sendiráðsins. „Við höfðum hins vegar ekkert hlutverk sem kemur að njósnum eða öðru slíku," segir Guðmundur. Guðmundur segir að ekki hafi verið fylgst með nágrönnum sendiráðsins. Hins vegar hafi verið fylgst með fólki sem keyrði framhjá sendiráðinu og ef vitað var að einhverjir stöðvuðu fyrir framan það sem ekki áttu heima í götunni hafi það verið kannað. Ekki hafi verið grennslast fyrir um það fólk sem vitað var að byggi í götunni. Guðmundur segir að það hafi verið ákveðið árið 2005 að sendiráðið tæki þjónustuna yfir. Það hafi verið sameiginleg ákvörðun allra sendiráða í Evrópu. Einhverjir starfsmenn sem unnu hjá Securitas hafi orðið starfsmenn sendiráðsins. Guðmundur þvertekur fyrir það að starfsmenn Securitas hafi verið að gramsa í rusli nágranna sendiráðsins eins og fram hefur komið í fréttum. „Það er náttúrlega bara ekki rétt. Við vorum í því hlutverki að leit að sprengjum. Þetta náttúrlega gerist eftir ellefta september 2001. Þá hækkar viðbúnaðarstig allra sendiráða Bandaríkjanna og við tökum þátt í því," segir Guðmundur.
Mest lesið Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Fleiri fréttir Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Bein útsending: Opinn fundur um áfallaþol Íslands Sjá meira