Innlent

Trúarbrögð eiga ekki að skapa hatur

Shakoor Khan og Sarafat Ullah, forsvarsmenn Ahmadiyya-múslima á Íslandi, standa fyrir ráðstefnu um uppruna trúarbragða. 
Fréttablaðið/Anton
Shakoor Khan og Sarafat Ullah, forsvarsmenn Ahmadiyya-múslima á Íslandi, standa fyrir ráðstefnu um uppruna trúarbragða. Fréttablaðið/Anton
Meginmarkmið ráðstefnu sem Samfélag Ahmadiyya-múslima á Íslandi stendur fyrir um miðjan mánuðinn er að sigrast á fordómum.

Shakoor Khan, forvígismaður samfélags Ahmadiyya á Íslandi, segir mikilvægt að fá fólk til að tala saman. Sú mynd hafi til dæmis verið dregin upp af múslimum að þeir séu hryðjuverkamenn sem vilji koma sínum boðskap á framfæri með stríði. „Það er ekki í samræmi við Kóraninn. Íslam stendur fyrir frið, en margir leggja það að jöfnu við eitthvað annað. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á þetta atriði og okkar slagorð er: ‚Elskum alla, hötum engan‘.“

Ahmadiyya-múslimar hafa starfað hér á landi frá árinu 2008. Þeir eru ekki beintengdir öðrum hópum múslima hér á landi, en eiga í góðum samskiptum við Félag íslenskra múslima og Menningarsetur múslima á Íslandi.

Kahn og Sarafat Ullah, félagi hans, segjast hafa mætt ákaflega góðu viðmóti Íslendinga. „Þegar ég útskýri að sú mynd sem er dregin fram í fjölmiðlum um íslam er röng eru nær allir sammála mér,“ segir Khan. Sérstaklega ánægjulegt sé að tala við unga Íslendinga. „Þau vilja lesa Kóraninn. Hvort þau taki svo trú í framhaldinu er algerlega óskylt mál. En þau vilja sækja sér upplýsingar um trúarbrögðin milliliðalaust með því að lesa ritin sjálf.“

Aðspurðir segjast þeir vonast til að þessi ráðstefna muni koma á framfæri meginatriðum trúarbragðanna.

„Svona færum við fólk nær hvert öðru. Það er okkar tilgangur. Fólk hefur mismunandi trúarskoðanir en í stað þess að skapa hatur á milli okkar ættu þau frekar að stuðla að ást.“

thorgils@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×