Innlent

Innbrot í fyrirtæki í austurborginni

Brotist var inn í fyrirtæki í austurborginni í nótt og þaðan stolið bíl. Ekki er vitað hversu lengi þjófurinn hafði ekið honum, þegar hann lenti í árekstri við annan bíl í Höfðahverfi undir morgun.

Ökumaður bílsins, sem varð fyrir þjófnum, meiddist ekki, og líklega hefur þjófurinn líka sloppið ómeiddur, því hann forðaði sér á hlaupum og er ófundinn.

Þá er lögregla að rannsaka tvö önnur innbrot, sem framin voru á höfuðborgarsvæðinu undir morgun. Ekki er enn vitað hverju var stolið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×