Gefur lítið fyrir rökstuðning 28. október 2010 06:00 Ögmundur Jónasson skipaði í starf skrifstofustjóra sjávarútvegsráðuneytisins þar sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra var vanhæfur í málinu. Geir Oddsson auðlindafræðingur íhugar að skjóta málinu til Umboðsmanns Alþingis.
Einn umsækjenda um starf skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins gefur lítið fyrir rökstuðning dómsmálaráðherra fyrir ráðningu fyrrum aðstoðarmanns ráðherra í starfið. „Mér finnst þessi rökstuðningur ekki merkilegur, og augljóst að þetta eru eftirárök,“ segir Geir Oddsson auðlindafræðingur. Þrettán sóttu um starfið, og var Jóhann Guðmundsson, fyrrverandi pólitískur aðstoðarmaður Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, meðal umsækjenda. Vegna þessa var Jón vanhæfur til að skipa í stöðuna og Ögmundi Jónassyni dómsmálaráðherra falið það hlutverk. Hann taldi Jóhann hæfastan og skipaði hann í stöðuna, sem er tímabundin til tveggja ára. Geir fór fram á rökstuðning ráðherrans fyrir því að hæfasti maðurinn hefði verið ráðinn til starfans. Í svari frá dómsmálaráðuneytinu, sem sent er fyrir hönd ráðherra, kemur fram að þrír umsækjendur hafi verið metnir hæfastir, og þeir kallaðir til viðtals. Jóhann og Geir voru báðir í þeim hópi. Í rökstuðningnum segir meðal annars að Jóhann hafi það umfram aðra umsækjendur að þekkja til starfa Stjórnarráðsins og starfa skrifstofustjóra innan þess. Þá þekki hann til starfa auðlindaskrifstofu ráðuneytisins. Þar segir enn fremur að það þyki styðja þá ákvörðun að ráða Jóhann að hann þekki starfsemi ráðuneytisins og geti því hafið störf af fullum krafti „innan skamms“. Geir gerir athugasemdir við þennan rökstuðning og íhugar nú að leita til umboðsmanns Alþingis vegna málsins. Hann segir það til dæmis stinga í stúf að því sé haldið til haga að Jóhann geti sett sig hratt inn í starfið, þegar ráðningarferlið hafi tekið hátt í þrjá mánuði. Þetta fari ekki saman. Ef legið hafi á að skipa í stöðuna hefði ferlinu verið hraðað. Þá gerir Geir alvarlegar athugasemdir við að reynsla Jóhanns af sjávarútvegsmálum sé metin sambærileg við aðra umsækjendur. Jóhann hafi innan við tveggja ára reynslu af sjávarútvegsmálum, en sjálfur hafi hann 23 ára reynslu af sjávarútvegi og fiskveiðistjórnun. Reynslan sé því ekki samanburðarhæf, og sama megi örugglega segja um aðra umsækjendur. „Það er erfitt að sjá annað en að einhvers konar pólitík hafi blandast inn í málið, sama hvað menn segja,“ segir Geir. „Miðað við það sem hefur verið að gerast hér á landi undanfarin misseri kom þetta mér á óvart.“ brjann@frettabladid.is
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Sjá meira