Ármann vill ekki sameinast Reykjavík Erla Hlynsdóttir skrifar 28. október 2010 09:07 Ármanni finnst skynsamlegra að sameina minni sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og halda Reykjavík þar fyrir utan
Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, telur ekki heillavænlegt að Kópavogur og Reykjavík verði sameinuð. „Mér finnst alveg út í bláinn að sameina tvö af stærstu sveitarfélögum landsins þannig að úr verði um 150 þúsund manna sveitarfélag," segir Ármann. Honum finnst liggja mun beinna við að ef sameina eigi sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þá ætti að sameina þau smærri en halda Reykjavík sér. Þannig myndi skapast meira jafnvægi á milli sveitarfélaga en að búa til eitt svo stór að það teldi tæpan helming allra landsmanna. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur viðrað þá skoðun sína að honum finnist að sameina eigi þessi tvö sveitarfélög og Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingar í Kópavogi, tekur undir með Jóni. Ármann er hins vegar algjörlega á móti þeirri nálgun. Meirihlutann í bæjarstjórn Kópavogs mynda Samfylking, Vinstri græn, Næst besti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa, en Sjálfstæðisflokkur og Framsókn eru í minnihluta. Ármann bendir á að niðurstöður rannsókna hafa sýnt að kjörstærð sveitarfélaga eru þau sem eru með í kring um fimmtíu þúsund íbúa. Þegar sveitarfélög eru orðin stærri en það þarf að koma upp sérstökum stjórnsýslustofnunum og stjórnunarkostnaður eykst. Íbúafjöldi Reykjavíkur er nú um 119 þúsund, í Kópavogi búa 30 þúsund manns, Garðbæingar eru 11 þúsund og Hafnfirðingar 26 þúsund. Á Álftanesi eru síðan um 2500 íbúar. Meðal þess sem Jón Gnarr nefndi sem kost sameiningar Reykjavíkur og Kópavogs var að ef af því yrði þá þyrftu Reykvíkingar ekki að fara í annað sveitarfélag til að versla í Smáralindinni. „Þetta var nú væntanlega grín hjá Jóni en borgarstjórinn má auðvitað ekki láta það trufla sig þó Smáralindin sé í öðru sveitarfélagi því við bjóðum hann auðvitað velkominn til okkar eins og alla aðra gesti," segir Ármann.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira