LÍÚ: Berjumst gegn hugmyndum stjórnvalda 28. október 2010 14:47 „
Það er nauðsynlegt að rekja fyrir ykkur samskipti okkar við stjórnvöld nokkuð ítarlega. Aðeins þannig tel ég mér fært að leiða ykkur inn í þá veröld sem við búum við. Allt frá því núverandi ríkisstjórn komst til valda hefur mikilvægasta verkefni okkar falist í því að berjast gegn illa ígrunduðum og óraunhæfum hugmyndum stjórnvalda. Hugmyndum um upptöku og uppboð á aflaheimildum samkvæmt svokallaðri fyrningarleið sem settar voru fram án nokkurs mats á afleiðingum þeirra." Þetta kom fram í ræðu Adolfs Guðmundssonar formanns LÍÚ á aðalfundi samtakanna í dag. Adolfs segir að íslenskur sjávarútvegur er vel skipulagður, hátæknivæddur þekkingariðnaður þar sem fjölmargir aðilar leggja hönd á plóg, bæði beint og óbeint. „Við eigum í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi um sölu sjávarafurða og alla daga eru þúsundir manna og kvenna að vinna frábært starf í íslenskum sjávarútvegi og tengdum greinum,"segir Adolf. Formaðurinn segir einnig: „Engu að síður er umræðan um sjávarútveginn hér heima fyrir oftast neikvæð og snýst langmest um kvótakerfið og hvernig því skuli breyta. Margir sem þar koma að vilja breyta reglum þannig að þeir geti veitt án þess kaupa eða vinna sér inn veiðiheimildir. Aðrir telja að með því að skattleggja sjávarútveginn sérstaklega verði hag þeirra betur borgið. Þeir hafa hinsvegar fæstir komið nærri sjávarútvegi eða látið sér detta það í hug. Margir þessara aðila kveðast drifnir áfram af sanngirni, jafnræði og mannréttindum. Að vísu er þar oft á tíðum lítið rúm fyrir mannréttindi þeirra starfa í atvinnugreininni." Adolf segir sjávarútveginn vera mikilvæga atvinnugrein fyrir Íslendinga og munu verða það áfram. Því væri það nauðsynlegt að hér væri stundaður sjálfbær sjávarútvegur sem skilaði okkur öllum arði. „Það er hinsvegar ekkert sjálfgefið að svo sé og þannig hefur það ekki alltaf verið," bætir hann við. Ræðuna í heild má finna á vefsíðu LÍÚ.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira