Innlent

Frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu samþykkt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það mun fækka við þetta borð þegar breytingarnar hafa náð í gegn. Mynd/ Stjórnarráðið
Það mun fækka við þetta borð þegar breytingarnar hafa náð í gegn. Mynd/ Stjórnarráðið
Frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu var samþykkt á Alþingi í dag.

Nýtt velferðarráðuneyti verður til með sameiningu heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis. Þá munu dóms- og mannréttindaráðuneytið og samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið renna saman í eitt innanríkisráðuneyti.

Frumvarpið tekur gildi um áramótin. Til stóð að sameina iðnaðarráðuneytið og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti en því hefur verið frestað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×