Ekki bara saga um Ragga 28. október 2010 06:15 Söngvarinn Raggi Bjarna stillir sér upp við glæsilegan fornbíl og við stýrið situr leikstjórinn Árni Sveinsson. Raggi er ánægður með mynd Árna, segir hana mjög vel heppnaða. fréttablaðið/anton
Heimildarmyndin Með hangandi hendi er á leiðinni í bíó. Ekki bara saga um Ragga Bjarna heldur einnig um skemmtanalíf Íslendinga, að sögn leikstjórans Árna Sveinssonar. Í kvikmyndinni Með hangandi hendi fylgir leikstjórinn Árni Sveinsson söngvaranum ástsæla Ragga Bjarna eftir á tveggja ára tímabili þar sem ýmislegt skemmtilegt gekk á. Myndin var frumsýnd á Skjaldborgarhátíðinni fyrir skemmstu en fer í almennar sýningar á föstudag. „Ég hitti hann fyrst sumarið 2008. Þá fór ég með honum og Þorgeiri [Ástvaldssyni] á gamla ættaróðalið hans Ragga, Hrafneyri. Þá var ég að þreifa á þessu út af því að Þorgeir bað mig um að tékka á þessu. Hann langaði til að gera mynd um Ragga því hann var búinn að starfa með honum lengi,“ segir Árni. „Síðan er ég með þeim fyrir vestan og er að hlusta á þá segja endalausar sögur, þá kveikti ég bara strax á þessu að auðvitað átti að vera fyrir löngu búið að gera mynd um þennan mann og vini hans líka. Síðan er annað sem gerði þetta miklu stærra fyrir mér. Það er þessi saga sem er grunnurinn að dægurtónlistarsögu Íslendinga, hún bara er þarna,“ segir hann. „Þetta er ekki bara saga um einn mann, sem er búinn að vera sextíu ár í bransanum – ertu ekki að djóka? – heldur um skemmtanalíf Íslendinga allan þennan tíma og hvernig það hefur breyst.“ Í myndinni er farið á æskuslóðir Ragga, í Austurbæjarbíó þar sem hann tróð upp og sýnt frá 75 ára afmælistónleikum hans og spilamennsku með Retro Stefson og Dr. Spock. „Svo hittum við allt þetta lið sem hann er búinn að vera að umgangast allan þennan tíma, sem er ekki lítið skemmtilegt lið,“ segir Árni og bætir við að amma hans tengist Ragga einnig á undarlegan hátt. „Ég hef alltaf verið sannfærður um að ég myndi kynnast Ragga út af því að amma mín heitir Ragna Bjarnadóttir og vann í Austurbæjarbíói í 43 ár. Ég man þegar ég var krakki og fannst rosalega skrítið að það væri þessi söngvari sem héti nákvæmlega sama og amma. Þannig að það má segja að þetta séu örlög.“ Raggi hélt upphaflega að Árni ætlaði að taka upp fimmtán mínútna myndskeið með sér en sú varð aldeilis ekki raunin. Hann sér ekki eftir því að hafa hleypt Árna í líf sitt því hann er hæstánægður með myndina. „Ég hélt kannski að þetta yrði leiðinlegt en þetta er svakalega kvikk. Hún er klippt alveg yndislega og hún er aksjón, hún er alvöru. Ég tala líka um vandræðin og vesenið þannig að þetta er ekki bara glansmynd af mér. Ég segi hvernig þetta var.“ „Auðvitað átti að vera fyrir löngu búið að gera mynd um þennan mann”. - Árni Sveinsson leikstjóri. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Sjá meira