Lífið

Trúði ekki á hjónaband

Gemma Arterton. MYNDIR/Cover Media
Gemma Arterton. MYNDIR/Cover Media

Breska leikkonan Gemma Arterton, 24 ára, sem vakti athygli í James Bond myndinni Quantum of Solace, viðurkennir að henni fannst gifting ekki skipta einu einasta mála þar til hún hitti núverandi eiginmann sinn, Ítalann Stefano Catelli.

„Ég hafði enga trú á heilögu hjónabandi því allir sem tengdust mér skildu. Mamma og pabbi og já bara allir voru hættir saman þannig að mér fannst gifting alls ekki vera lykill að hamingjusömu sambandi," sagði Gemma.

„Ég trúði aldrei að ég myndi standa upp við altarið og gefa hjarta mitt. Síðan setti ég upp hringinn og í dag elska ég að vera gift. Það er yndislegt. Maðurinn minn er rómantískur og hann fær mig til að hlæja. Hann er algjör rugludallur," sagði hún.

Við erum á Facebook. Sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.