Landsvirkjun til bjargar Helguvík 2. nóvember 2010 18:22
Umframorka Landsvirkjunar og orka frá Búðarhálsvirkjun fara að hluta í Helguvík, samkvæmt nýjustu áætlun um að tryggja álverinu þar nægilega raforku. Forstjóri Norðuráls segist myndu fagna þátttöku Landsvirkjunar í verkefninu.Í þeim vandræðum sem verið hafa við að afla álveri í Helguvík raforku hefur þriggja ára stjórnarsamþykkt Landsvirkjunar ekki auðveldað lausn en hún kveður á um að ekki verði samið um orkusölu til nýrra álvera á Suður- eða Vesturlandi.Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að samningar við HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur séu burðarásinn í verkefninu. Spurður hvort Landsvirkjun þurfi einnig að koma að málum svarar Ragnar:"Vonandi sér Landsvirkjun sér einnig fært að koma að þessu verkefni. Við sjáum til með það."Málið þykir pólitískt viðkvæmt en samkvæmt heimildum Stöðvar tvö hefur Landsvirkjun þegar lýst sig reiðubúna að hjálpa til við að koma Helguvík í gang.Nýjasta áætlun um orkuöflun til Norðuráls gerir ráð fyrir að, af 450 megavatta raforku til þriggja áfanga álversins, komi 250 megavött frá HS Orku, 120-140 megavött frá Orkuveitu Reykjavíkur og 60-80 megavött komi frá Landsvirkjun.Miðað er við að orka til fyrsta áfanga álversins komi frá Reykjanesvirkjun og Hellisheiðarvirkjun, orka til annars áfanga komi úr nýjum jarðvarmavirkjunum í Eldvörpum og Hverahlíð, og loks muni orka til þriðja áfanga komi frá nýrri jarðvarmavirkjun við Krýsuvík og væntanlegri vatnsaflsvirkjun Landsvirkjunar við Búðarháls enda fer umframorka sem til er í kerfinu langt með að mæta nýgerðum orkusamningi Landsvirkjunar við Alcan í Straumsvík."Við myndum fagna þátttöku Landsvirkjunar," segir Ragnar. "Ég held líka að það verði mjög sterk skilaboð gagnvart alþjóðasamfélaginu að fyrirtæki sem er í eigu íslenska ríkisins, það er að segja eina fyrirtækið sem er alfarið í eigu ríkisins, sýni verkefninu stuðning í verki."
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Sjá meira