Innlent

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar næstu daga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Herjólfur mun sigla næstu daga til Þorlákshafnar en þessa stundina er unnið að siglingaáætlun sem verður birt á vef Vegagerðarinnar um leið og hún er tilbúin.

Það er mat Siglingastofnunar að ekki verði hægt að opna Landeyjahöfn næstu daga vegna gosefnanna sem borist hafa með þrálátri austanátt í mynni nýju hafnarinnar. Svo óheppilega vill til að bilanir hafa tafið dæluskip sem liggur í höfn í Reykjavík en ráðgert er að það sigli í Landeyjahöfn á föstudag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×