Álver í Helguvík að komast í höfn 30. október 2010 18:57
Hindranir í vegi þess að álvers- og virkjanaframkvæmdir vegna Helguvíkur komist á fullt skrið falla nú hver af annarri og segjast aðstandendur nú bjartsýnir á að málið komist í höfn innan skamms tíma. Smíði álversins hefur verið í hægagangi undanfarin tvö ár, af mörgum ástæðum. Ákvörðun Norðuráls um að stefna að fjórðungi minna álveri en áður léttir á þrýstingi um virkjanaframkvæmdir. Ný borhola við Reykjanesvirkjun þykir mikilvægur áfangi í að eyða óvissu um orkuöflun, og menn sjá hilla undir lausn í skipulagsmálum gagnvart sveitarfélögum. Runólfur Ágústsson, verkefnisstjóri Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum um Helguvík, segir að menn séu að vinna mjög hratt þessa dagana og sú vinna gangi vel. "Þessu máli hefur miðað mjög vel áfram undanfarna tvo mánuði og við erum bjartsýn á að ljúka þessu innan tiltölulega skamms tíma," segir Runólfur. Forstjóri Norðuráls, Ragnar Guðmundsson, sagði á ársfundi Vinnumálastofnunar í gær að framkvæmdir vegna Helguvíkurálvers myndu skapa tíu þúsund ársverk og skila 12 milljarða tekjum á ári til hins opinbera. Spurður hvort framkvæmdir séu að fara á fullt svarar Ragnar því til að of snemmt sé að segja til um það á þessari stundu. Unnið sé að því hörðum höndum og með samstilltu átaki sé það hægt. En þá verði allir að spila með enda sé það heilmikið átak að koma þessu í réttan farveg. "Það hafa auðvitað verið ýmsar tafir og vantað kannski svona samstillingu aðila í þessu. Það er alveg ljóst. En vonandi erum við að ná þessu saman núna og ég heyri ekki annað en að menn hafi áhuga á að klára þetta fyrr en seinna," segir Ragnar. Þegar spurt er nánar hve stutt gæti verið í niðurstöðu svarar Runólfur að menn hafi áður brennt sig á að lofa dagsetningum. Ragnar kveðst heldur ekki vilja nefna neinar tímasetningar. "Við erum bara að vinna í þessu á fullu og vonandi gengur það hratt og vel," segir Ragnar Guðmundsson.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira