Sturla er kominn heim Erla Hlynsdóttir skrifar 2. nóvember 2010 10:08
Sturla Jónsson, vörubílstjóri og mótmælandi, er fluttur aftur heim frá Noregi. „Ég var í flísalögnum þarna úti og hafði bara ekki skrokk í að liggja á hnjánum í tólf tíma á dag. Ég hugsaði því með mér hvort ég vildi kála mér strax eða flytja aftur heim," segir hann. Sturla vakti mikla athygli í mótmælum vörubílstjóra og síðar í búsáhaldabyltingunni. Hann bauð sig einnig fram til Alþingis fyrir hönd Frjálslynda flokksins en flokkurinn þurrkaðist út á þingi í þeim sömu kosningum. Sem kunnugt er þá fluttist Sturla til Noregs á síðasta ári og var fylgst með undirbúningnum að flutningnum í myndinni „Guð blessi Ísland." Til stóð að eiginkona Sturlu og synir hans myndu fylgja á eftir en þau ákváðu síðan að búa á Íslandi þar til drengirnir hefðu klárað grunnskólann. Um tveir mánuðir eru síðan Sturla flutti aftur heim. Hann er án atvinnu en hefur boðið sig fram til stjórnlagaþings. „Ég er að reyna að finna mig aftur. Það væri fínt að fá borgað fyrir að sitja á stjórnlagaþingi," segir hann. Sturla fær ekki atvinnuleysisbætur og segist ekki vilja þiggja þær. „Ég hef alla tíð unnið fyrir mér. Ég vil því geyma það í lengstu lög. Ég bíð bara eftir byltingunni. Hér eru langar biðraðir af fólki sem bíður eftir mat. Þetta gengur ekki svona lengi. Það verður bylting," segir hann. Kona Sturlu er einnig atvinnulaus og segir hann fjölskylduna lifa á atvinnuleysisbótunum hennar. „Þetta er streð," segir hann.
Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Fleiri fréttir „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Sjá meira