Innlent

Ekki mistök að skerða fæðingarorlof

HGH og HMP skrifar
Félagsmálaráðherra hafnar því að mistök hafi verið að skerða fæðingarorlof um áramótin, en feðrum í orlofi hefur fækkað hlutfallslega meira en mæðrum. Hann sér ekki fyrir sér hærri framlög til sjóðsins á komandi ári.

Þegar Alþingi tók skerðingu fæðingarorlofsins til meðferðar lýstu þingmenn áhyggjum af því ef foreldrar styttu fæðingarorlof með börnum sínum af fjárhagslegum ástæðum. Þá var sagt slæmt fyrir jafnfrétti til lengri tíma ef feður styttu fæðingarorlofstíma sinn hlutfallslega meira en mæður.

Eins og fréttastofa greindi frá í júlí virðist það þó vera raunin, en fyrstu sex mánuði ársins hefur feðrum í fæðingarorlofi fækkað um 114 að meðaltali í mánuði, eða átta prósent. Samsvarandi fækkun kemur ekki fram hjá mæðrum.

Ráðuneyti Árna Páls hefur undirbúið þingsályktunartillögu um jafnfréttismál, meðal annars að kanna áhrif niðurskurðar á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði á töku feðra á fæðingarorlofi. Hann segir ekki koma til greina að hækka greiðslurnar aftur á næsta ári.

Árni tekur undir að fækkun feðra í orlofi sé bagaleg, en hins vegar geti aðrir þættir skýrt fækkunina en skerðingar á orlofsgreiðslum og hugsanlega séu feður að fresta töku orlofs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×