Frumvarp um stjórnarráð kemur eftir helgi 28. maí 2010 05:30 Ráðherrum verður fækkað úr tólf í níu um næstu áramót, verði frumvarp forsætisráðherra að lögum. fréttablaðið/daníel
Reyna á að leggja frumvarp um breytingar á stjórnarráði fyrir Alþingi eftir helgi. Frumvarpið var rætt í þingflokkum stjórnarflokkanna í gær, en Vinstri græn frestuðu umræðunni fram á mánudag. Vonir standa til að frumvarpið verði að lögum á þessu þingi og breytingarnar að veruleika um áramótin. Nokkur styr hefur staðið um efni frumvarpsins og hefur Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opinberlega lýst sig andvígan breytingunum. Það hefur Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, einnig gert. Samkvæmt heimildum blaðsins standa líkur þó til að þingflokkur Vinstri grænna muni samþykkja frumvarpið. Samfylkingin styður frumvarpið. Búast má við að Jón Bjarnason verði einn þeirra ráðherra sem víkja úr stjórninni við breytingarnar. Breytingarnar eru í takti við það sem kynnt var í stjórnarsáttmálanum, fækkun ráðuneyta úr tólf í níu. Ný og betrumbætt ráðuneyti yrðu umhverfis- og auðlindaráðuneyti, atvinnuvegaráðuneyti og innanríkisráðuneyti. Í farvatninu eru einnig breytingar á starfsháttum innan stjórnarráðsins. Snýr það að ábyrgð ráðherra. Skerpt verði á stjórnunar- og eftirlitsskyldum, skyldur ráðherra verða útfærðar enn frekar og verkstjórn forsætisráðherra verður skýrari, svo eitthvað sé nefnt.- kóp
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Sjá meira