Gamlir en vinalegir vitleysingar á topplistanum Erla Hlynsdóttir skrifar 22. desember 2010 13:21 Skjáskot úr þáttunum um Klaufabárðana
Fortíðarþráin virðist ríkjandi hjá kaupendum barnaefnis fyrir þessi jólin og sjást þess merki vel á listum yfir mest seldu mynddiskana. Klaufabárðarnir, vitleysingarnir vinalegu sem urðu góðkunningjar hverrar fjölskyldu fyrir um þrjátíu árum, verma þrjú sæti á lista Eymundsson yfir mest selda barnaefnið í desember. Þriðji og nýjasti diskurinn er þar í fjórða sæti en fyrir síðustu jól komu út diskar 1 og 2. Þeir eru aftur komnir á topplistann - fyrsti diskurinn í tólfta sæti og diskur númer tvö í því fimmtánda. Mynddiskur með frönsku teiknimyndunum „Einu sinni var... Saga mannkyns" frá árinu 1978 nýtur einnig mikilla vinsælda um þessar mundir. Því er greinilegt að það er ekki aðeins nýtt barnaefni á borð við Toy Story, Sveppa og Harry Potter sem heillar fyrir þessi jólin.Hrein nostalgía „Við finnum að fólki finnst gaman að geta boðið börnunum sínum að horfa á það sama og það horfði á sjálft sem krakkar," segir Eyrún Magnúsdóttir, sem ásamt manni sínum og barnsföður hóf útgáfu á Klaufabárðunum á síðasta ári. „Margir tala um að þetta sé eins og að hitta gamla vini aftur sem maður hefur ekki séð í mörg ár. Þannig að það má segja að það verði fagnaðarfundir þegar Klaufabárðarnir birtast á skjánum eftir áratuga fjarveru," segir hún. Hugmyndin að útgáfunni kom þegar Eyrún var ólétt af syni þeirra sem nú er rúmlega tveggja ára gamall. „Þetta var bara hrein nostalgía," segir Eyrún sem segir þau hafa langað til að leyfa syninum að njóta sama barnaefnis og þau horfðu á sem börn. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og greinilegt að landinn kann vel að meta barnaefni með vísan í fortíðina.Þættirnir fjalla um tvo nágranna sem virðast hafa sérstakt lag á að koma sér í heimatilbúið klandur af einhverju tagi. Á þriðja disknum má til dæmis fylgjast með þeim flytja þvottavél upp á þriðju hæð á sinn sérstaka hátt, búa sér til líkamsræktartæki úr gardínustöngum og öðrum lausamunum, og mála íbúð á nýstárlegan hátt.Fluttu síðar í einbýlishús Klaufabárðarnir tékknesku komu fyrst út 1979 .Á mynddiskunum þremur eru 35 þættir, þar af voru 28 framleiddir á árunum 1979-1985. Síðustu sjö þættirnir á disk 3 skera sig úr, en þeir voru framleiddir rétt eftir Flauelsbyltinguna á árunum 1989-1990. Í þessum „nýju" þáttum eru Klaufabárðarnir fluttir út blokk í einbýli og tæknileg áferð þáttanna er önnur. En glöggir áhorfendur taka líka eftir því að annar þeirra félaga hefur skipt gráu rúllukragapeysunni út fyrir rauða. Ritskoðun í gömlu Tékkóslóvakíu Upprunalega áttu Klaufabárðarnir að vera í gulri og rauðri peysu. Þar sem ritskoðun var við lýði í gömlu Tékkóslóvakíu var því breytt þar sem einhverjir töldu víst að með litavalinu væri verið að vísa í samskipti stórveldanna Kína, táknað með gulu, og Rússlands, táknað með rauðu. Á árum Flauelsbyltingarinnar, 1989-1990, og mikilla þjóðfélagsbreytinga í gömlu Tékkóslóvakíu þótti hins vegar við hæfi að draga fram rauðu peysuna og láta alla ritskoðun sem vind um eyru þjóta.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira