Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ekki enn hafnar 7. júní 2010 19:14
Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, sem mikilvægt þótti að vinna í sumar, hafa enn ekki hafist vegna ágreinings Landsvirkjunar og lægstbjóðanda og gæti svo farið að verkið tefðist um heilt ár. Þá hefur Landsvirkjun enn ekki tekist að fjármagna verkið í heild. Ákvörðun um að setja virkjanaframkvæmdir við Búðarháls á fulla ferð hafa ýmsir séð fyrir sér að gæti orðið táknrænt upphaf endurreisnar atvinnulífsins. Iðnaðarráðherra taldi að minnsta kosti ástæðu til að vera á blaðamannafundi Landsvirkjunar í febrúar í vetur þegar tilkynnt var að undirbúningsframkvæmdir færu af stað í vor og stefnt væri að því að fjármögnun lyki á vordögum svo unnt yrði að bjóða meginverkið út fyrir mitt þetta ár. En það virðist nú samt vera að gerast því að á Búðarhálsi sjást enn engar vinnuvélar. Ástæðan er sú, að sögn upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, að fyrirtækið ákvað að hafna tilboði lægstbjóðanda á þeirri forsendu að sá hafði ekki reynslu af jarðgangagerð, sem var skilyrði. Lægstbjóðandi kærði þá ákvörðun og er nú beðið úrskurðar Kærunefndar útboðsmála. Hvort töfin valdi ársfrestun við Búðarháls svarar Landsvirkjun að það sé ekki vitað. Þá lýsti forstjóri Landsvirkjunar bjartsýni í febrúar um að fjármögnun yrði lokið fyrir mitt ár og útboð alls verksins var þá áformað nú á vordögum. Það hefur ekki gengið eftir.
Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Erlent Fleiri fréttir Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Sjá meira