Lífið

Þorgrímur Þráins og Jói Fel auglýsa The Silver

Komnir í Silfur-ævintýrið
<B>Þorgrímur Þráins</B>, <B>Jói Fel</B> og <B>Ragnheiður Gröndal</B> eru meðal þeirra sem auglýsa tvær nýjar tegundir af hárgelinu The Silver sem landsliðsmennirnir <B>Logi Geirsson</B> og <B>Björgvin Páll Gústavsson</B> eru ábyrgir fyrir. Alls hafa í kringum tíu þúsund dósir selst af The Silver-gelinu.
Komnir í Silfur-ævintýrið <B>Þorgrímur Þráins</B>, <B>Jói Fel</B> og <B>Ragnheiður Gröndal</B> eru meðal þeirra sem auglýsa tvær nýjar tegundir af hárgelinu The Silver sem landsliðsmennirnir <B>Logi Geirsson</B> og <B>Björgvin Páll Gústavsson</B> eru ábyrgir fyrir. Alls hafa í kringum tíu þúsund dósir selst af The Silver-gelinu.

Íslensku landsliðshetjurnar Björgvin Páll Gústafsson og Logi Geirsson hefja Evrópumótið í Austurríki með stæl. Því í dag koma á markað tvær nýjar tegundir í hárgels-línunni þeirra, The Silver. Þær heita Look 3 og The New Look.

Landsliðsmennirnir fengu síðan Stefán Drengsson hjá drengsson pics til að gera auglýsingu fyrir sig þar sem þjóðþekkt andlit leggja blessun sína yfir vöruna. Meðal þeirra má nefna Þorgrím Þráinsson, Jóa Fel, Ragnheiði Gröndal og Gulla Helga.

„Þetta er auðvitað eina íslenska hárgelið og við höfum fengið fínar viðtökur, bæði frá hárgreiðslumönnum og svo fólki sem hefur fengið að prófa þessar nýju týpur," segir Björgvin í samtali við Fréttablaðið en hann var að sjálfsögðu á sínum stað í marki íslenska landsliðsins þegar það atti kappi við Serba í fyrsta leik landsliðsins á mótinu í gærkvöldi. Þegar umrædd frétt var skrifuð var ekki ljóst hvernig leikurinn fór en útlitið og hárið hefði ekki átt að þvælast fyrir þeim.

Hárgelið The Silver kom á markað síðasta sumar og segir Björgvin að salan hafi gengið vonum framar.

„Við erum búnir að selja í kringum tíu þúsund dósir en við setjum markið hátt og ætlum okkur að ná árangri á þessu sviði," segir Björgvin og upplýsir að þeir séu með fleiri vörutegundir í þróun sem eigi eftir að koma út í The Silver-línunni.

Heyrst hefur að jafnvel sé að koma á markað ilmur fyrir karla en Björgvin vildi ekkert tjá sig um það mál. The Silver vakti athygli út fyrir landsteinana því þýska handboltatímaritið handball- world.com var með ítarlegt viðtal við þá félaga seint á síðasta ári.

freyrgigja@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.