Lífið

Úr útrás í heilsuráðgjöf

Þórdís tók þátt í útrásinni, en starfar nú sem cross fit-þjálfari og heilsuráðgjafi. Hreiðar Már, bróðir Þórdísar, er einnig crossfittari, að hennar sögn.
fréttablaðið/anton
Þórdís tók þátt í útrásinni, en starfar nú sem cross fit-þjálfari og heilsuráðgjafi. Hreiðar Már, bróðir Þórdísar, er einnig crossfittari, að hennar sögn. fréttablaðið/anton

„Ég hef alltaf haft áhuga á góðu og heilbrigðu lífi. Þrátt fyrir að vera í bisness þá hef ég reynt að passa að vera í ágætisformi og hugsa um hvað ég borða,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir.

Þórdís starfar nú sem cross fit-þjálfari í Sporthúsinu ásamt því að veita heilsuráðgjöf. Nýja starfið er talsvert frábrugðið því gamla, en hún var áberandi í íslensku viðskiptalífi þegar góðærið stóð sem hæst. Hún var meðal annars yfirmaður fjölmiðlafjárfestinga Baugs, forstjóri Stoða Invest og stjórnarformaður Dagsbrúnar, ásamt því að vera hluthafi í félaginu.

Dagsbrún réðist í nokkur útrásarverkefni, svo sem dagblaðið Nyhedsavisen í Danmörku og kaup á bresku prentsmiðjunni Windham.

„Ég er að útskrifast sem heilsuráðgjafi. Ég er búin að vera í námi í New York og er bæði að æfa og þjálfa cross fit ásamt því að veita heilsuráðgjöf,“ segir Þórdís, en hún neyddist til að skipta um starf í kjölfar hrunsins. „Þá fór ég að æfa af meiri krafti, byrjaði að þjálfa og fór í nám. Ég tók level 1-réttindi til að kenna cross fit. Þetta er rosalega skemmtilegt og uppbyggilegt og ég nýt mín bara vel.“

Spurð hvort hún stefni á útrás í líkamsræktarbransanum segist hún ekki stefna á það.

En ertu alveg hætt að skipta þér af viðskiptum? „Algjörlega, nema mínum eigin rekstri í kringum þetta. Ég bý að mikilli og góðri reynslu – þrátt fyrir að hún sé öðruvísi en ég hafði vonað. Ég reyni að nýta hana til góðs. Læra af henni.“

Þórdís er systir Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Hann var grennri forstjóri bankans og virðist vera í fínu líkamlegu formi. En ætli Þórdís sé búin að plata hann í cross fit?

„Já, hann er crossfittari,“ segir hún og hlær. Hún bætir við að hann hafi þó ekki komið í tíma til hennar þar sem hann býr í Lúxemborg í dag og stundar æfingarnar þar. atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.