Úr ritdeilu yfir í froðuna 22. janúar 2010 03:00 kona orða sinna Þórdís Elva Bachmann mun syngja bakrödd í lagi Steinarrs Loga Nesheim í forkeppni Eurovision sem fram fer í Sjónvarpinu á laugardag. Fréttablaðið/stefán
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og leikskáld, verður á meðal þátttakanda í forkeppni Eurovision söngkeppninnar sem sýnd verður í Sjónvarpinu annað kvöld. Óhætt er hægt að fullyrða að Þórdís sé margt til lista lagt því hún hefur að undanförnu staðið staðið í ritdeilu við hæstaréttadómarann Jón Steinar Gunnlaugsson. Þórdís Elva mun syngja bakraddir í lagi Steinarrs Loga Nesheim, Every Word, ásamt bróður sínum, Þórði Gunnari Þorvaldssyni. „Á gamlárskvöldi ákváðum við bróðir minn að strengja áramótaheit saman sem við mundum efna á þessu ári. Bróðir minn rekur hljóðverið Stúdíó Ljónshjarta og við ákváðum að þetta áramótaheit yrði tónlistartengt, hann var svo ekkert að tvínóna við hlutina heldur hringir í mig og segir mér að við séum að fara að syngja í Eurovision. Á dauða mínum átti ég von, en ekki þessu, en ég er kona orða minna og verð að standa við þau," útskýrir Þórdís Elva sem segist hafa sungið mikið á yngri árum en að söngurinn hafi verið kominn neðarlega á forgangslistann hjá henni. Aðspurð segist Þordís Elva hafa æft sig hæfilega fyrir keppnina og hefur spilað lagið endurtekið í hverri brjóstagjöf, en stutt er síðan hún lá sængurleguna. Þórdís Elva segir vissulega skrítið að fara úr ritdeilu um háalvarleg mál yfir í Eurovision. „Mér finnst ég svolítið vera að leika tveimur skjöldum með því að fara úr ritdeilunni yfir í froðuna, en ég ætla bara að vera samkvæm sjálfri mér. Ég get tekið lífinu hæfilega alvarlega og á sama tíma staðið á mínu gangvart mönnum í ráðastöðum. Ég skora eiginlega á Jón Steinar hér með til að taka sjálfur þátt í Eurovision, hann getur ekki verið minni maður en ég." -sm
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira