Borgin ætti ekki að mismuna börnum 9. september 2010 03:15 Borgin greiðir ekki niður mat til foreldra barna í Ísaksskóla og Landakotsskóla. fréttablaðið/heiða
Reykjavíkurborg niðurgreiðir ekki mat í einkaskólunum Ísaksskóla og Landakotsskóla. Foreldrar barna í þessum skólum borga því 11.700 krónur á mánuði fyrir fæði barna sinna, í stað þeirra 5.000 króna sem greiða þarf í skólum sem borgin rekur. Sölvi Sveinsson, skólastjóri Landakotsskóla, segir að skólinn muni leita eftir því að Reykjavíkurborg greiði niður mat fyrir nemendur skólans eins og önnur börn í Reykjavík. „Það ætti ekki að skipta máli hvort þau séu í Ísaksskóla og Landakotsskóla eða Hagaskóla og Melaskóla,“ segir Sölvi. „Ég hefði haldið að það yrði að minnsta kosti 150 krónum ódýrara á dag, ef ekki meira, ef borgin kæmi til móts við foreldra.“ Sölvi segir börn og foreldra almennt vera mjög ánægð með matinn í skólanum og mælist til þess að fleiri skólar nýti sér svipaða þjónustu. „Það sem skiptir mestu máli er að krakkarnir séu ánægðir með matinn og hann sé góður fyrir þá,“ segir hann. Erna Sverrisdóttir hjá Happi, sem sér um matinn í Ísaksskóla og Landakotsskóla, segir fyrirtækið hafa þá stefnu að bæta heilsu Íslendinga og auðvitað liggi beinast við að byrja á æsku landsins. Hún segir að hollum matarvenjum og góðum siðum eigi að gera hátt undir höfði í grunnskólum. „Þetta er mikilvægt uppeldisatriði. Við þurfum að hlúa betur að matarvenjum okkar. Við gerðum tilraun með Happ-mat í rétt rúman mánuð í Landakotsskóla og það tókst gífurlega vel,“ segir Erna. „Hlutfall grænmetis og hollra kolvetna er miklu hærra hjá okkur en í öðrum skólaeldhúsum. Á flestum stöðum eru aðeins 9 prósent matarins sem þar er á borð borinn grænmeti og ávextir sem er langt undir ráðlögðu mataræði Lýðheilsustöðvar.“ Verð á matarskammti fyrir börnin fer eftir fjölda þeirra, bæði í Ísaksskóla og Landakotsskóla. Happ er í samningaviðræðum við þriðja skólann. „Við teljum að maturinn hjá okkur sé ekki dýrari en í mötuneytum hjá Reykjavíkurborg, miðað við þá niðurgreiðslu sem á sér stað þar,“ segir Erna. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira