Lögreglan handtók strípaling í Elliðaárdalnum SB skrifar 16. júlí 2010 10:48 Maðurinn var handtekinn í gær og yfirheyrður. Síðan var honum sleppt.
Maður á sextugsaldri beraði sig fyrir framan hóp ungra stúlka sem voru við leik í Elliðaárdalnum í gær. Lögreglan kom á vettvang og handtók manninn. Honum var sleppt eftir yfirheyrslur í gær. Það var DV sem greindi fyrst frá málinu í gær og ræddi við Birgi Lúðvíksson, föður sextán ára stúlku, sem lék sér ásamt vinkonum sínum við fossinn í Elliðaárdalnum. Í fréttinni kemur fram að strípalingurinn eða flassarinn, eins og menn sem stunda hegðun af þessu tagi eru stundum kallaðir, hafi læðst að stúlkunum, berað sig, og fróað sér fyrir framan þær. „Það fór gífurlegur óhugur um mig," sagði Birgir þegar hann fékk fréttirnar af því sem hafði gerst. Dóttir Birgis faldi sig bak við tré og hringdi í lögregluna sem mætti skömmu síðar á svæðið og handtók flassarann. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni barst tilkynning í gær um mann sem hegðaði sér ósæmilega í nágrenni við krakka sem voru að leik í Elliðaárdalnum. Maðurinn var handtekinn en sleppt síðar í gær eftir yfirheyrslur. Málið mun fara sína leið í kerfinu, sagði lögreglumaður á vakt í samtali við Vísi. Ekki er óalgengt að fréttir berist af flössurum á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2005 bárust fréttir af manni í Fossvogi sem beraði sig fyrir framan unga krakka. Hann gekk undir nafninu Flautukarlinn því hann náði athygli þeirra með því að blístra. Árið 1987 fjallar Tíminn um flassara á Miklatúninu sem hafi berað sig fyrir framan tvær stúlkur - þrátt fyrir næturfrost.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Sjá meira