Innlent

Mörg fordæmi fyrir því að dómsmálaráðherra sé ekki löglærður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Heimildir herma að Ögmundur Jónasson sé að setjast í stól dómsmálaráðherra. Mynd/ Stefán.
Heimildir herma að Ögmundur Jónasson sé að setjast í stól dómsmálaráðherra. Mynd/ Stefán.
Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, mun, eftir því sem heimildir herma, taka við embætti dóms- og mannréttindamálaráðherra á ríkisráðsfundi sem boðaður hefur verið í hádeginu í dag.

Verði það raunin er hann fyrsti einstaklingurinn í hartnær tvo áratugi, sem gegnir embættinu, en er ekki lögfræðingur að mennt. Ögmundur er sagnfræðingur. Óli Þ. Guðbjartsson, þingmaður Borgaraflokksins, var dóms- og kirkjumálaráðherra á árunum 1989—1991 í fjögurra flokka ríkisstjórn Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Borgaraflokksins. Óli er kennari að mennt. Á undan honum var Halldór Ásgrímsson viðskiptafræðingur sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra. Í átta ár, eða á árunum 1983-1991, gegndu fjórir menn embætti dóms- og kirkjumálaráðherra. Enginn þeirra var löglærður.

Eftir að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við völdum árið 1991 settist Þorsteinn Pálsson í stól dóms- og kirkjumálaráðherra. Síðan þá hafa allir dóms- og kirkjumálaráðherrar verið löglærðir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×