Velta fyrir sér 15% hækkun á gjaldskrá Ingimar Karl Helgason skrifar 3. nóvember 2010 18:31
Borgaryfirvöld hafa velt fyrir sér allt að fimmtán prósenta hækkun á öllum þjónustugjaldskrám. Það þýðir verulegar hækkanir í sund, á söfn, í húsdýragarðinn, á byggingaleyfi, heimaþjónustu og í sumum tilvikum á mat og kaffi. Fréttastofa hefur í höndum minnisblað borgaryfirvalda frá því í byrjun september. Þar er velt er upp ýmsum leiðum til að auka tekjur borgarinnar með því að hækka gjaldskrár. Við höfum áður fjallað um útsvarið. Enn fremur hugsanlega hækkun á fasteignagjöldum, leikskólagjöldum, gjöldum fyrir skólamáltíðir og frístundaheimil. Niðurstaðan er í grófum dráttum sú að yrðu þessi gjöld færð til samræmis við það sem þekkist í Kópavogi og Hafnarfirði; gæti kostnaður fjögurra manna fjölskyldu aukist um fimm til tíu þúsund krónur á mánuði, ofan á fimmtán hundruð króna útsvarshækkun. Þetta miðast við fjögurra manna barnafjölskyldu, með sex hundruð þúsund í mánaðartekjur í tuttugu milljóna króna íbúð. En þjónusta borgarinnar er víða. Í minnisblaðinu er fjallað um hversu miklar tekjur, fimm, tíu og fimmtán prósenta hækkanir á gjaldskrám borgarinnar, skili borgarsjóði. Í sem stystu máli er talið að fimmtán prósenta hækkun á öllum gjaldskrám, muni skila borgarsjóði tæplega sexhundruð og tíu milljónum króna á ári; að því gefnu að hækkanir hafi ekki áhrif á eftirspurn. En hvaða gjöld eru þetta? Þetta eru til dæmis gjöld fyrir sundstaði. Í Húsdýragarðinn, á Borgarbókasafnið, Árbæjarsafn, gjald fyrir byggingaleyfi, sorphirðugjald; gjald fyrir hundahald, gjald fyrir heimaþjónustu, vegna íbúða aldraðra og félagsstarf.
Mest lesið Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Sérsveitarmenn um borð í Þór Innlent „Það koma bara færri“ Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Erlent Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Erlent Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Erlent Fleiri fréttir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Sjá meira