Ákvarðana um orkuskipti brátt að vænta 4. júní 2010 08:00 Einar Vilhjálmsson, markaðsstjóri Metans, hér að ofan, segir bestu leiðina að breyta bílum í metanbíla. Fréttablaðið/GVA
Á næstu vikum kunna að liggja fyrir tillögur um skattaívilnanir og hvata frá hinu opinbera til fólks og fyrirtækja sem vill færa sig yfir í vistvæn ökutæki, eða breyta ökutækjum sínum þannig að þau verði vistvænni. Starfshópurinn var kynntur á ráðstefnu um visthæfar samgöngur í Háskólanum í Reykjavík í gær. Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, segist gera ráð fyrir að hópurinn vinni hratt og skili ábendingum áður en endanleg mynd kemst á tillögur hans í haust. Á ráðstefnunni í gær voru kynntar margvíslegar lausnir sem tengjast visthæfum samgöngum og sýndar voru bifreiðar sem ganga fyrir rafmagni, metani, lífdísil og vetni. Katrín segir hins vegar ljóst að það verði ekki stjórnvöld sem taki ákvörðun um hvaða tækni verði á endanum ofan á. „Tækniþróunin og markaðir erlendis ráða þessu,“ segir Katrín, en kveður það þó um leið sína tilfinningu að hér verði ofan á blönduð leið. „Aðstæður og aðgengi að orkugjöfum er svo misjafnt eftir löndum.“ Iðnaðarráðherra afhjúpaði í gær nýtt merki áætlunar um orkuskipti í samgöngum. Nýr vefur áætlunarinnar er www.graenaorkan.is. Spurningum sem vakna um aðkomu stjórnvalda að uppbyggingu og áherslum í breyttu orkuumhverfi í samgöngum segir hún að verkefnisstjórnin, sem nú hafi verið skipuð, svari. Þar á meðal er spurningin um hvort olíufélögum verði gert að blanda lífrænni olíu í jarðefnaolíu í ákveðnum mæli, líkt og þegar hefur verið fyrirskipað í Noregi og í löndum Evrópusambandsins. „Núna erum við í raun og veru að setja þetta átak af stað, en allt eru þetta hlutir sem verkefnastjórnin er að fara að vinna að. En við ætlum henni nú að gera áfangaskiptaáætlun, sem nær utan um framleiðslu á eldsneytinu, nýsköpun hvað varðar farartæki og uppbyggingu á innviðum,“ segir hún og vísar þar jafnt til aðgengis að ökutækjum sem og að eldsneytinu. „Í þriðja lagi þarf svo að skoða skattaumhverfið og hvatana þannig að þetta geti gerst hratt. Ég geri ráð fyrir að menn geti verið komnir með nokkuð góða mynd af þessari áætlun strax í haust. Og þá geta menn bara ætt af stað.“olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna hópslagsmál í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira