Vill fá sér latte áður en næstu skref verða ákveðin 30. maí 2010 13:06 Jón Gnarr og Besti flokkurinn er ótvíræður sigurvegari kosninganna. Hann ætlar samt að fá sér latte áður en næstu skref verða ákveðin. Mynd/ Daníel. „
Ég þarf bara að tala við Óttar og Einar og fá mér Latte áður," sagði Jón Gnarr í Silfri Egils spurður hver næstu skref Besta flokksins verða í borgarstjórn en eins og kunnugt er hlaut flokkurinn flesta borgarfulltrúa eða sex talsins. Hann áréttaði þó það sem hann hefur alltaf sagt, Besti flokkurinn er til í að vinna með öllum. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins spurði hversvegna það væri nauðsynlegt að mynda meirihluta í borgarstjórn en hún hefur haldið þeim sjónarmiðum fram áður. Hún sagði að það væri þó nauðsynlegt að fara eftir vilja kjósenda og ræða fyrst við Besta flokkinn áður en rætt yrði við Samfylkinguna, sem getur einnig myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokknum í borgarstjórn. Jón sagði hinsvegar að stjórnmál væru orðin leiðinleg og húmorslaus. Í raun væru þau búin að missa tengslin við fólkið í landinu. „Það er búið að taka húmorinn úr stjórnmálunum," sagði Jón síðan. Dagur viðurkenndi að Samfylkingin hefði fengið slæma útreið í sveitarstjórnarkosningunum og að hann axlaði sína ábyrgð þar.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Fleiri fréttir Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Sjá meira